Description
Tifosi Seek 2.0 sólgleraugun eru ofurlétt, umgjarðarlaus íþróttagleraugu.
Þau henta í alla útivist, hvort sem þú ert að hjóla, hlaupa, í golfi eða bara að hafa það notalegt úti í náttúrunni.
Glerið er Polycarbonate gler sem er einstaklega sterkt gler með rispuvörn.
Gleraugun þola því þónokkuð hnjask.
Polycarbonate gler er 20 sinnum sterkara en venjulegt gler og aðeins 1/3 af þyngd venjulegs glers.
Linsur gleraugnanna eru hannaðar með það í huga að hlutföll á umhverfinu afbakist ekki og tryggir þannig hámarks útsýni.
Þessi gleraugu eru frábær fyrir þá sem stunda golf þar sem þau auðvelda lestur á broti á flötunum og auðveldara er að sjá golfkúluna á flugi við erfið birtuskilyrði.
- Högg- og rispuvarið Polycarbonate gler
- Vörn gegn UVA og UVB geislum
- Mjög létt (21 grömm)
- Henta í alla útivist
- Grilamid TR-90
- Stillanlegir nefpúðar og armar










