Description
Flottur og léttur herrabolur úr 50% merínóull.
- Advanced Wool 140 er einstök efnisblanda (50% merínóull / 50% pólýester) sem tryggir hámarks öndun og þægindi, hvort sem þú ert á ströndinni eða uppi á fjöllum.
- Bolurinn er gerður úr léttu merínóefni sem andar einstaklega vel og hentar vel í sumarhitann eða sem grunnlag.
- Merínóullin vinnur gegn svitalykt á náttúrulegan hátt sem gerir bolinn að frábærum kosti í ferðalagið eða eftir æfingu dagsins.
- Efnið flytur raka hratt frá húðinni og þornar á svipstundu, sem eykur þægindi til muna við virka útivist.
Efni: 50% Merínóull, 50% Pólýester.







