Description
Fullkominn félagi í hlaupin, utanvegahlaupin eða í ræktina.
Með sportlegum, glæsilegum saumum og sniði sem fylgir línum líkamans, býður jakkinn upp á framúrskarandi þægindi og hámarks hreyfifrelsi.
- Innfelld net í baki tryggir að jakkinn andi vel á meðan á krefjandi æfingum stendur.
- Jakkinn er gerður úr merínóefni sem veitir bæði hlýju, teygist vel og stýrir líkamshita frábærlega.
- Hliðarvasar með rennilás tryggja að síminn eða lyklarnir séu á sínum stað á meðan þú hreyfir þig.
- Hvort sem þú stundar jóga, pilates, hlaup eða lyftingar, þá er þessi jakki hannaður til að styðja við þínar hreyfingar.
Efni: Merínóullarblanda með polyester, polyamide og lycra fyrir teygju og endingu.
Þröngt snið.
Þyngd: 354 g.









