Salomon ADV Skin 12 Set Hlaupavesti Svart

28.995 kr.

Söluhæsta hlaupavesti Salomon — 12 lítra burðarpláss, tvær 500 ml flöskur fylgja, fyrir ultra-vegalengdir og lengri ferðir yfir 60 km.

Lykileiginleikar:
ADV Skin 12 Set er fjölhæft og söluhæsta hlaupavesti Salomon. 12 lítrar geta hæglega tekið allan skyldubúnað sem þarft í öll lengri hlaup.
Tvær 500 ml mjúkflöskur fylgja og sensiFIT™ snið með Y-laga uppbyggingu á baki dreifir burðinum jafnt.
Tilvalið fyrir ultra-keppnir, lengri þjálfunardaga og lengri ferðir yfir 60 km.

SKU: 711V019008 Categories: , Tags: , ,

Description

Söluhæsta hlaupavesti Salomon — 12 lítra burðarpláss, tvær 500 ml flöskur fylgja, fyrir ultra-vegalengdir og lengri ferðir yfir 60 km.

Lykileiginleikar:
ADV Skin 12 Set er fjölhæft og söluhæsta hlaupavesti Salomon. 12 lítrar geta hæglega tekið allan skyldubúnað sem þarft í öll lengri hlaup.
Tvær 500 ml mjúkflöskur fylgja og sensiFIT™ snið með Y-laga uppbyggingu á baki dreifir burðinum jafnt.
Tilvalið fyrir ultra-keppnir, lengri þjálfunardaga og lengri ferðir yfir 60 km.

Hentar best fyrir:
Langar keppnir og lengri þjálfunarferðir yfir 60 km þar sem þú þarft að bera mat, drykk og skyldubúnað.
Sjálfstæðar ferðir á fjöllum þar sem auka lög, vatnsbirgðir og öryggisbúnaður þurfa að rúmast.

12 lítra burðarpláss
Aðalvasinn að aftan tekur ríkulegt magn af búnaði — millilög, vatnsheldan jakka, mat, fyrstu hjálp og allan skyldubúnað.
Hliðarólar þrýsta vestinu saman svo það sé ekkert laust í vestinu þegar þú fyllir ekki vestið.

Tvær 500 ml mjúkflöskur fylgja
Mjúkflöskurnar (ULTRA soft flasks) sitja í brjóstvösum og pakkast saman þegar þær tæmast.
Auðveldari áfylling og hreinsun en hefðbundnar hörðar flöskur, og minna högg á sting við hlaup.

Samhæft við 2 L vatnspoka
Innra hólf að aftan rúmar 2 L vatnspoka (selst sér).
Ól á innanverðu vestinu heldur vatnspokanum á sínum stað og hægt er að þræða rörið á framanvert vestið.

Quick Link bringuhuðsólar
Bringusólar með Quick Link stillingu sem þú stillir á ferðinni.
Teygjanlegt kerfi sem auðveldar öndun við áreynslu en heldur vestinu nálægt líkamanum.

Margir vasar og pláss fyrir hlaupastafi
10+ vasar samanlagt — brjóstvasar, axlavasar, hliðarvasar með rennilás, lykilhaldari, stór vasi á baki og pláss fyrir hlaupastafi með teygjuólum.
Samhæft við Custom Quiver stafaslíðrið.

 

Tæknilegar upplýsingar:
Rúmmál: 12 lítrar
Þyngd: ~247 g (án fylgihluta), ~323 g með flöskum
Flöskur: 2 × 500 ml ULTRA mjúkflöskur
Efni: 84% polyamide / 16% elastan (megin), polyester á baki
Vatnsvörn: PFC-laus DWR
Stilling: Quick Link, hliðarsamþjöppun
Göngustafapláss: Teygjuólar, samhæft við Custom Quiver
Snið: sensiFIT™, unisex
Stærðir: XS–XL (mælt eftir brjóstummáli)

Algengar spurningar og gagnlegar upplýsingar

Hvernig vel ég rétta stærð?
Stærðir miðast við brjóstummál mælt yfir bringuna. XS hentar 81–89 cm, S 87–96 cm, M 95–101 cm, L 100–107 cm, XL 106–114 cm .
Ef þú ert á milli stærða er betra að velja minni — það teygist á vestinu við notkun.

Hver er munurinn á ADV Skin 12 og ADV Skin 5?
Rúmmálið er munurinn — 12 L fyrir ultra og lengri ferðir, 5 L fyrir maraþon-vegalengdir og styttri ferðir.
Sniðið, sensiFIT™-uppbyggingin og flöskurnar eru eins.

Fylgja brúsar með?
Já — það fylgja tveir 500 ml brúsar með. Samtals 1L

Tilbúin í kílómetrana — hvort sem þeir eru 60 eða 160

Additional information

Stærð