Description
Pioneer 3EX er stöðugt og áreiðanlegt tjald sem er fljótlegt og einfalt í uppsetningu.
Það býður upp á þægilegt rými fyrir allt að þrjá einstaklinga en er líka frábær og rúmgóður valkostur fyrir tvo ef von er á vætu eða óstöðugu veðri.
Tjaldinu fylgir stórt forrými með góðri lofthæð þar sem tilvalið er að geyma bakpoka og búnað, elda eða einfaldlega slaka á þegar svalt er úti.
- Framúrskarandi veðurvörn: Ytra tjaldið er úr HydroTex Core efni með 3.000 mm vatnsheldni og límdum saumum. Botninn á innra tjaldinu er með heil 6.000 mm vatnsheldni sem tryggir að bleyta smýgur ekki upp úr jarðveginum.
- Stórt og sveigjanlegt forrými: Einstaklega rúmgott forrými nýtist vel undir búnað eða eldun. Hægt er að losa og hliðra framhlið innra tjaldsins til þess að tvöfalda stærð forrýmisins ef þörf krefur.
- Einföld uppsetning: Litakóðaðar álsúlur og lokaðar súlurásir öðrum megin gera það að verkum að einn maður getur auðveldlega og fljótlega reist tjaldið, jafnvel í vindi.
- Góð loftræsting og lágmörkuð rakamyndun: Loftræstitúður á báðum endum tjaldsins tryggja stöðugt loftflæði, sem minnkar þéttingu og raka innandyra. Netefni (mesh) í hurðinni heldur mýflugum og skordýrum úti.
Tæknilegar upplýsingar:
Fjöldi manna: Allt að 3 manns.
Vatnsheldni ytra tjalds: 3.000 mm (HydroTex Core, eldvarnarvarið pólýester).
Vatnsheldni botns: 6.000 mm (PU-húðað Taffeta pólýester).
Súlur: Ál #7001, T6, 8,5 mm (anodised / oxað ál).
Þyngd: 3,2 kg (Lágmarksþyngd án poka og hæla: 2,7 kg).
























