Description
Dömu stuttbuxur sem tilheyra línu Picture af vistvænni hágæðavöru fyrir hlaup og aðra hreyfingu.
Þær eru úr fisléttu og teygjanlegu efni sem veitir óviðjafnanlegt hreyfifrelsi og tilfinningu sem minnir á „aðra húð“.
- „4-way stretch“ tryggir að efnið teygist til allra átta, sem er nauðsynlegt í krefjandi utanvegahlaupum eða í ræktinni.
- Framhliðin er gerð úr „hyper-stretch“ efni en bakið úr „grid mesh“ netefni til að hámarka loftun og öndun.
- Dry Now tæknin dregur raka hratt frá húðinni og Dry Feel meðferðin vinnur gegn lykt.
- Með UPF50+ veita buxurnar hámarks UV-vörn fyrir þá sem eyða löngum stundum úti í sólinni.
- Teygjanlegt mitti með stillanlegum reimum og „ósýnilegur“ renndur vasi að aftan fyrir smáhluti.
Efni: 90% Circular Polyester (endurunnið), 10% Spandex (teygja).
Þyngd: 160 g.
















