Description
Fjölhæfur ferðabakpoki í öll ævintýri.
Wildpath bakpokinn er hinn fullkomni félagi fyrir kröfuhörð ferðalög þar sem létt hönnun mætir frábæru notagildi.
Með 35 lítra rými og góðu skipulagi er þessi poki hannaður til að gera pökkun og aðgang að búnaði eins einfaldan og hugsast getur.
- Opnun eins og á ferðatösku: Pokinn er með ferðatösku opnun (opnast alveg upp með rennilás) sem gerir þér kleift að sjá allt innihaldið í einu og raða í hann á einfaldan hátt.
- Tæknileg þægindi: EVA foam bakstykkið og Bloom-foam™ bólstrun (vistvænt frauð úr þörungum) tryggja frábæra öndun og þægindi, jafnvel þegar pokinn er þungur.
- Sveigjanleiki í burði: Mjaðmabeltið er aftengjanlegt sem er frábært ef þú ert að nota pokann sem handfarangur eða í styttri ferðir um borgina. Axlarólar og belti eru úr loftgóðu netefni sem lágmarkar svita.
- Snjöll hólf: Pokinn er með aðskilið neðra hólf með rennilás sem er tilvalið fyrir skó eða óhreinan þvott.
- Veðurvörn: Pokinn kemur með innbyggðri regn yfirhöfn og Flap-rain™ hönnun sem verndar eigur þínar ef þú lendir í úrkomu.
Tæknilegar upplýsingar:
Rými: 35 lítrar (kjörstærð sem handfarangur eða í helgarferðir).
Efni: 100% Endurunnið pólýester.
Þyngd: 1340 g.
Bakkerfi: EVA foam og Bloom-foam™ bólstrun.
Vatnsvörn: Innbyggð regn yfirhöfn og Flap-rain™ vörn.






