Description
Buxur sem eru úr teygjuefni sem þornar hratt, veitir ótrúlegt hreyfifrelsi og einstök þægindi hvort sem þú ert á hálendinu eða að skoða borgina.
- Sérstök vefnaðartækni tryggir að efnið teygist í allar áttir, sem gerir buxurnar einstaklega þægilegar í erfiðum göngum eða löngum flugferðum.
- Aðeins 300 g að þyngd eru þetta með léttari göngubuxum á markaðnum, sem gerir þær tilvaldar í bakpokann eða ferðatöskuna.
- Efnið flytur raka hratt frá sér og er meðhöndlað með Teflon Ecoelite™ DWR (PFC-frítt) sem hrindir frá sér léttri rigningu og óhreinindum.
- Teygjanlegt mitti tryggir að buxurnar sitji vel án þess að þrengja að, jafnvel eftir margra klukkustunda göngu.
- Tveir renndir hliðarvasar geyma verðmætin á öruggan hátt.
Efni: 92% Endurunnið Nylon, 8% Spandex.
Snið: Þægilegt snið sem mjókkar niður.
Þyngd: 300 g.









