Description
Super U-Peg Box kemur með 20 sterkum stálhælum, hælatogara og harðgerðum geymslukassa.
Hælarnir eru með U-laga prófíl sem veitir einstaklega gott grip og festu í jörðu, svo tjaldið haggast ekki í hviðum.
- Sterk bygging: Hælarnir eru smíðaðir úr 2 mm þykku stáli sem þolir að láta berja sig niður í harðan eða grýttan jarðveg án þess að bogna.
- Hælatogari innifalinn: Með settinu fylgir hælatogari) sem gerir það leikandi létt að draga hælana upp úr jörðinni þegar pakkað er saman.
- Harðgerður geymslukassi: Allt settið kemur í sterkum plastkassa sem heldur hælunum saman á einum stað.
Tæknilegar upplýsingar:
Innihald: 20 x Super U-stálhælar, 1 x hælatogari, 1 x plastkassi.
Efni: Stál (hælar) og sterkt plast (kassi).
Lengd hæla: 24 cm.
Stærð kassa: 25,5 x 4,5 x 20,5 cm.
Þyngd setts: 2,25 kg.




