Description
Outwell Sleepnest dýnan er hönnuð fyrir pör og fjölskyldur sem vilja njóta frábærra þæginda á ferðalögum eða í tjaldútilegunni.
Svæðaskiptur lúxusstuðningur með snjöllum svampholum (cut-outs) tryggir þægindi.
Slitsterk TPU-bygging og teygjanlegt pólýester gefa mjúkt og stöðugt yfirborð á meðan sérstök 3D-lögun með djúpum prófíl lyftir svefngæðunum á hærra plan.
Með hágæða efnum sem eru algjörlega laus við PFAS eiturefni, sameinar Sleepnest dýnan þægindi, notagildi og umhverfisvitund í hverri ferð.
- Svæðaskiptur stuðningur: Lúxus bólstrun sem er lagskipt eftir þunga líkamans til að veita hámarks þægindi.
- Fljótleg í uppsetningu: Tvöfaldur Flat High-Flow (FHF) ventill flýtir verulega fyrir loftflæði bæði þegar dýnan er blásin upp og þegar hún er tæmd.
- Mjúk og endingargóð: Gert úr einstaklega slitsterku en teygjanlegu pólýester sem er ofurmjúkt viðkomu.
- Traust bygging: TPU-húðun sem er varin gegn því að flagna eða losna, sem tryggir endingu og loftþéttni.
- Léttari í ferðalagið: Sérstaklega stórar svampholur halda þyngdinni í lágmarki án þess að fórna mýktinni svo minna mál er að ferðast með hana.
- Burðarpoki fylgir: Rúmgóður poki sem gerir flutning og geymslu að leik einum.
Tæknilegar upplýsingar:
Stærð (L x B x H): 203 x 63 x 5,0 cm.
Pökkuð stærð: 64 x 16 cm.
Þyngd: 1,75 kg.
Ventill: FHF ventill (Flat High-Flow).
Umhverfisvænt val: 100% án PFAS efna.
Litur: Grænn.
Efni:
Toppur og hliðar: 30D teygjanlegt pólýester.
Botn: 190T 75D pólýester með TPU húðun.
Burðarpoki: 100% pólýester.









