Description
Kaffi filterinn leggst algjörlega flatur saman þegar hann er ekki í notkun sem gerir hann tilvaldan í útileguna, bílinn eða í bakpokann.
Filterinn er höggþolinn, fljótlegur í þrifum og það tekur aðeins örfáar sekúndur að opna hann eða ganga frá honum.
- Samanbrjótanleg hönnun: Þegar filterinn er brotinn saman er hann aðeins 3 cm á þykkt.
- Gæða- og öryggisefni: Gert úr hitaþolnu silíkoni og ryðfríu stáli sem gefur filternum stöðugleika ofan á kaffikönnunni eða hitabrúsanum.
- Silíkonhandfang: Þægilegt handfang úr silíkoni sem helst svalt viðkomu svo þú brennir þig ekki þegar heitu vatni er hellt yfir kaffið.
Tæknilegar upplýsingar:
Stærð í notkun: 15 x 13 x 8 cm (B x D x H).
Stærð pakkað: 15 x 13 x 3 cm (aðeins 3 cm á þykkt samanbrotin).
Efni: Silíkon og ryðfrítt stál.
Þyngd: Aðeins 140 g.





