Description
Oofos® Heilsusandalarnir eru ótrúlega mjúkir, léttir og þægilegir.
Sandalarnir eru með einstaka og höfundaréttavarna hönnun sem veitir frábæran stuðning undir iljarnar.
Hönnunin hjálpar að dreifa álaginu á hæla, iljar og táberg eins vel og hægt er.
Í sandölunum er Oofoam™ dempunarefni sem er 37% meira höggdempandi en í hefðbundnum skóm.
Efnið er bæði mjúkt og létt og frauðið er lokað svo það dragti ekki í sig bleytu og raka.
Mýktin og dempunin frá OOFOAM™ endist vel og er ekki plastefni eins og þekkist í svipað útlítandi sandölum.
Oofos® eru hannaðir til að hvíla fótinn og henta því frábærlega sem inniskór, í vinnu, eftir íþróttir eða mikið álag og auðvitað sem sundskór.
Mýktin og dempunin ásamt stuðningnum minnkar álag á fætur, ökkla, hné og bak.
Sérstaklega góðir líka fyrir þá sem glíma við hælspora og/eða iljarfellsbólgu eða einfaldlega þreytu og verki í hælum.
Þess vegna mæla sjúkraþjálfarar og fótaaðgerðafræðingar með Oofos
- Góður stuðningur undir iljarnar
- Mjúkir, mjög léttir og þægilegir
- Draga ekki í sig raka og bleytu
- Hentar vel fyrir iljarfellsbólgu, hælspora og tábergssig
- Stillanlegir yfir ristina
- Frábær fyrir endurheimt eftir erfiða æfingu eða vinnudag










