Description
River er einn vinsælasti diskurinn frá Latitude 64 síðasta áratuginn og það er fyrst og fremst gríðarlegu svifi að þakka.
Þetta er Fairway Driver sem hentar fullkomlega í nákvæmnisköst þar sem mikil stjórn er nauðsynleg.
Það er einstaklega þægilegt að kasta honum og hann passar spilurum á öllum getustigum.
Með sínu mikla svifi og mildu sveigju í lokin er River dásamlegur í löng svifmikil köst og stórar „anhyzer“ línur.
FAIRWAY DRIVER
Speed 7
Glide 7
Turn -1
Fade 1
PLAST
OPTO
Opto er mjög endingargott plast með hálfgegnsæju útliti og oft fallegum litbrigðum.
Það er þróað til að standast mikla notkun og krefjandi aðstæður án þess að missa eiginleika.
Í sumum diskum í Opto plastinu má finna smá glimmer eða doppur sem gefa disknum einstakt yfirbragð.




