Description
Fisléttur og þægilegur regnjakki sem veitir vörn gegn veðri og vindum allan ársins hring.
Jakkinn er gerður úr Texapore Core Soft Taslan 2-laga efni og fóðraður með mjúku neti að innanverðu sem gerir hann einstaklega þægilegan og mjúkan viðkomu.
- Jakkinn er algjörlega vatnsheldur (10.000 mm), vindheldur og andar vel, svo barnið verður hvorki blautt né of heitt við leik.
- Áföst hetta og vatnsfráhrindandi rennilásar tryggja að rigningin komist hvergi inn.
- Tveir hliðarvasar fyrir smáhluti eða til að ylja höndunum.
- Jakkinn er búinn endurskinsmerkjum sem auka sýnileika barnsins í skammdeginu eða við slæmt skyggni.
- Jakkinn vegur aðeins 250 g (miðað við stærð 128) og tekur lítið pláss í skólatöskunni, sem gerir hann að frábærum aukajakka til að grípa í.
Upplýsingar:
Vatnsheldni: 10.000 mm.
Öndun: 6.000 g/m²/24 klst.
100% vindheldur.
Efni: Texapore Core Soft Taslan 2-laga.
Þyngd: 250 g (stærð 128).











