Description
Hágæða gönguskór fyrir virka og hressa krakka sem elska ævintýri úti í náttúrunni.
Skórnir eru með slitsterku gervileðri og textíl í efra byrði, sem situr ofan á grófum gúmmísóla með miklu gripi og fisléttum EVA-millisóla.
Þessi samsetning tryggir höggdempun og þægindi sem krakkarnir munu elska allan daginn.
TEXAPORE CORE himna tryggir að skórnir eru alveg vatnsheldir í bleytu, rigningu eða drullu.
- TEXAPORE CORE vatnsheldni: Skórnir eru með 10.000 mm vatnsheldni sem heldur fótunum alveg þurrum rigningu, ásamt 6.000 g/m²/24hrs öndun sem hleypir raka út svo þeim verður ekki kalt á fótunum.
- Langt reimakerfi: Reimakerfið nær langt fram á tána, sem gefur einstaklega góða möguleika á að stilla og herða skóna svo þeir passi fullkomlega á jafnt breiða sem smáa fætur og veiti hámarks stuðning.
- Grófur ytri sóli og EVA dempun: Grófi gúmmísólinn tryggir frábært grip á hálum steinum, grasi og mold, á meðan EVA-dempunin vinnur gegn þreytu í fótum eftir langan dag á göngu.
- Sterk vörn: Efra byrðið úr gervileðri og textíl þolir mikið hnjask og verndar tærnar fyrir grjóti og rótum á stígnum.
Tæknilegar upplýsingar:
Tækni: TEXAPORE CORE (Vatnsheldir, vindheldir og anda vel).
Vatnsheldni: 10.000 mm.
Öndun: 6.000 g/m²/24hrs.











