Description
Töff og vandaður „bomber“ jakki með hettu frá EN FANT sem er hannaður til að standast vind og bleytu.
Jakkinn er með 10.000 mm vatnsheldni og er vindheldur, sem gerir hann tilvalinn fyrir íslenska veðráttu.
Yfirborðið er meðhöndlað með hinni umhverfisvænu BIONIC FINISH® ECO húðun, svo væta og óhreinindi perla af.
Breiðir stroffkantar á ermum og í mitti gefa honum rétta „bomber“ útlitið og halda vindinum úti.
Rennilás með hökuvörn svo hann narti ekki í húðina.
Jakkinn er með hliðarvösum fyrir hendur eða smáhluti og er GRS vottaður og gerður úr meira en 50% endurunnum efnum.







