Description
Kinn 4 er kúlutjald með aukinni lofthæð og stóru, framlengdu anddyri sem nýtist frábærlega sem setustofa eða geymsla fyrir töskur, hjólreiðabúnað og skó.
Tjaldið býður upp á frábæra svefnupplifun með dökku svefnhólfi og er tilbúið fyrir innbyggða LED-lýsingu.
Ein snjallasta lausn tjaldsins er fjarlægjanlegt gólf í anddyrinu; hægt er að skilja það eftir heima til að minnka þyngd og pakkastærð, sem gerir tjaldið tilvalið í ævintýraferðir þar sem hvert gramm telur.
- Full hæð og stórt anddyri: Tjaldið er með góða lofthæð svo hægt er að standa uppréttur inni í tjaldinu. Framlengda anddyrið kemur með gólfi sem er með háum brúnum sem hægt er að smella af.
- SleepTight dökkt svefnhólf: Innra tjaldið er hannað til að halda dagsbirtunni úti, sem tryggir mun betri og dýpri svefn í íslensku miðnætursólinni eða snemma á kvöldin.
- Tilbúið fyrir Twinflower LED-ljós: Tjaldið er sérstaklega hannað með innbyggðum frönskum rennilás til að smella Twinflower Tent Light LED-borðanum (selt sér) beint í loftið á einfaldan og fljótlegan hátt. Ljósið gengur fyrir USB-C.
- Góðir gluggar og loftræsing: Gluggar á báðum hliðum hleypa birtu inn en koma með gardínum sem hægt er að hneppa upp fyrir næði. Loftop að framan og ofan tryggja gott loftflæði og minnka rakamyndun.
Tæknilegar upplýsingar:
Svefnpláss fyrir 4.
Vatnsheldni ytri dúks : 3000 mm (WeatherGuard 3000, límdir saumar).
Vistvæn valkostur (NXT LVL): PFAS-frí vatnsvörn (PFAS-free water repellency).
Stangir: EnduraFlex trefjagler 11 mm (litakóðaðar stangir fyrir auðvelda uppsetningu).
Uppsetningartími: Tilbúið að ganga inn í á 8 mín (fullfrágengið á 12 mín).
Stærð pakkað: 66 x 20 cm.
Þyngd: 8,6 kg (hægt að minnka með því að skilja anddyrisgólfið eftir).
Innifalið: Tjald, stangir, 23 stk. hælar.















