Description
1,5 lítra vatnsblaðra frá CUBE er sérstaklega löguð og hönnuð til að passa fullkomlega ofan í mittistöskur.
Hún er ekki bara fislétt, sterk og sveigjanleg, heldur er hún með sérlega breiðu opi sem gerir það leikandi auðvelt að fylla á hana, þrífa hana og þurrka eftir notkun.
Mælikvarði utan á blöðrunni hjálpar þér að fylgjast með hversu mikið vatn er eftir eða til að blanda electrolytes í réttum hlutföllum.
- Sérsniðin fyrir mittistöskur: Breiðari og lægri hönnun sem dreifir þyngdinni fullkomlega yfir mjaðmirnar í stað þess að safnast í bungu.
- Auðveld í umhirðu: Breiða opið gerir það að verkum að auðvelt er að komast inn í blöðruna til að þurrka hana að innan, sem kemur í veg fyrir myglu og ólykt.
- Gæða- og heilsumeðvituð: Framleidd úr sterku TPU efni sem er algjörlega laust við skaðleg plastefni eins og BPA og PVC.
Mælikvarði : Sýnir nákvæmlega hversu mikið vatn er eftir eða hversu mikið hefur verið drukkið.




