Description
Vandaður og litríkur skel jakki frá Color Kids sem sameinar þægindi, öryggi og umhverfisvernd.
Hann er gerður úr slitsterku efni sem hentar fullkomlega í breytilega íslenska veðráttu og er með endurskini.
Jakkinn er með 8.000 mm vatnsheldni og er meðhöndlaður með umhverfisvænu BIONIC FINISH® ECO húðuninni sem hrindir frá sér vatni og óhreinindum.
Efnið andar vel (3.000 g/m²) sem kemur í veg fyrir svitamyndun við leik.
Mjúk hökuvörn efst á rennilásnum kemur í veg fyrir að hann narti í hökuna.
Eiginleikar:
- Öruggir vasar með rennilás.
- Áföst hetta og stillanlegur faldur neðst til að tryggja að jakkinn sitji vel að líkamanum og haldi hita.
- Endurskinsmerki eykur sýnileika barnsins í skammdeginu.
- Jakkinn er GRS vottuð vara (Global Recycled Standard), gerður úr meira en 50% endurunnum efnum.






