Description
Vandaðir PU vettlingar frá CeLaVi sem halda höndum barnanna þurrum í rigningu og bleytu.
Vettlingarnir eru með 10.000 mm vatnsheldni, sem þýðir að þeir þola mikla bleytu og pollaleik.
Að innan eru þeir fóðraðir með mjúku taffeta efni sem eykur þægindi og hlýju.
Teygja er um úlnliðina og smelluband sem tryggir að vettlingarnir sitji vel og renni ekki fram af hendinni.
Endurskinsmerki með CeLaVi lógóinu eykur sýnileika barnsins í skammdeginu.
Vettlingarnir eru GRS vottaðir (Global Recycled Standard) og innihalda 34% endurunnin efni (CERES-0366).






