Description
Adrenaline GTS 25 er sambærilegur skór við Ghost (Ghost er vinsælasti innanbæjarskórinn frá Brooks) nema að Adrenaline er styrktur.
Hentar vel fyrir fólk sem gengur skó til á hliðunum (skekkja skó).
Það er því styrking til að minnka slit/skekkingu á hliðum.
Munurinn á BROOKS Adrenaline GTS 25 og eldri týpum er að þessi týpa er mýkri og með meiri dempun en eldri týpur.
DNA LOFT v3 í miðsóla sem gefur mjög góða dempun.
Einnig er meiri öndun í yfirbyggingu.
Yfirbyggingin er með góðri öndum og góð bólstrun í hælkappa sem heldur vel utan um ökla.
Mikið til úr endurunnum efnum.
Í miðsólanum virkar dempunin þannig að orkan sem kemur í niðurstiginu færist til hliðanna og minnkar þannig álag á fætur og stoðkerfi líkamans.
Hlaupaskór sem henta einnig frábærlega í göngutúra innanbæjar.










