Description
LIV BC skíðin eru með aukinn stífleika, eru hröð fyrir utanbrautarskíði og stefnuföst og stöðug – sérstaklega er spennan í skíðunum hönnuð fyrir dömur.
LIV BC Fram skíðin eru grönn og passa í spor.
En eru frábær kostur þegar ferðast er á skíðunum þar sem þau henta mjög vel þegar gengið er með púlku eða þyngri byrði.
Skíðin eru slétt og þarf því klístur á festusvæðið sem er kostur ef gengið í mjög mismunandi færi.
LIV BC skíðin eru fjölhæf skíði en eru á heimavelli hjá þeim sem vilja geta gengið lengri leiðir og vilja gott rennsli. Gönguskíðin eru með stálkanti á öllum skíðunum sem eykur öryggi og stjórnun skíðanna ef farið er niður í móti.
Einnig eru skíðin útbúin með möguleika á að setja skinn undir festusvæðið ef færið er upp í móti eða á annan hátt erfitt. Mjög auðvelt að er setja skinninn undir og taka þau af.
Skinnin eru seld sér og hægt er að skoða þau hér.
Gönguskíðin eru virkilega vönduð framleiðsla frá norska framleiðandanum Asnes sem hefur við hönnun skíðanna verið í samstarfi við þekktustu ævintýramenn Noregs um hvaða eiginleika skíðin þurfa að bera.
Val á skíðum
Lengd skíðanna er ákvörðuð út frá lengd og þyngd skíðarans. Taflan hér að neðan er til viðmiðunar og taka skal inn fleiri þætti þegar skíði eru valin. Þessir þættir geta verið: getustig, notkun skíðanna og þær aðstæður sem reiknað er með að skíða mest í. Eins getur verið mikilvægt að taka tillit til ef ganga á með púlku eða þunga bakpoka í lengri ferðum.
Stærðartafla – viðmið (dömur og herrar)
| Hæð (cm) | Þyngd (kg) | Lengd skíða |
| 145-155 | -55 | 170 cm |
| 155-165 | 55-65 | 175 cm |
| 165-170 | 60-70 | 180 cm |
| 170-175 | 70-80 | 187 cm |
| 175-185 | 75-85 | 194 cm |
Almennt ráð er að ef mest er gengið í grófu landslagi (upp/niður, skóglendi osfrv) þá ætti að velja styttri skíði en ef ætlunin er að ganga lengri og flatari leiðir. Ef skíðari er léttur m.v. hæð ætti að velja styttri skíði og öfugt.












