Asnes Amundsen Fram BC Waxless Gönguskíði

79.990 kr.

Amundsen Fram Waxless skíðin eru með aukinn stífleika, eru hröð fyrir utanbrautarskíði og stefnuföst og stöðug.
Amundsen Fram skíðin eru grönn og passa í spor.
En eru frábær kostur þegar ferðast er á skíðunum þar sem þau henta mjög vel þegar gengið er með púlku eða þyngri byrði.

Description

Amundsen Fram Waxless skíðin eru með aukinn stífleika, eru hröð fyrir utanbrautarskíði og stefnuföst og stöðug.
Amundsen Fram skíðin eru grönn og passa í spor.
En eru frábær kostur þegar ferðast er á skíðunum þar sem þau henta mjög vel þegar gengið er með púlku eða þyngri byrði.

Amundsen Waxless skíðin eru fjölhæf skíði en eru á heimavelli hjá þeim sem vilja geta gengið lengri leiðir og vilja gott rennsli.   Gönguskíðin eru með stálkanti á öllum skíðunum sem eykur öryggi og stjórnun skíðanna ef farið er niður í móti.

Ekki er þörf fyrir áburðarkunnáttu þar sem skíðin eru með rifflum sem gefur gott grip við flestar venjulegar aðstæður.  Einnig eru skíðin útbúin með möguleika á að setja skinn undir festusvæðið ef færið er upp í móti eða á annan hátt erfitt.  Mjög auðvelt að er setja skinninn undir og taka þau af.
Skinnin eru seld sér og hægt er að skoða þau hér.

Gönguskíðin eru virkilega vönduð framleiðsla frá norska framleiðandanum Asnes sem hefur við hönnun skíðanna verið í samstarfi við þekktustu ævintýramenn Noregs um hvaða eiginleika skíðin þurfa að bera.

Val á skíðum

Lengd skíðanna er ákvörðuð út frá lengd og þyngd skíðarans.  Taflan hér að neðan er til viðmiðunar og taka skal inn fleiri þætti þegar skíði eru valin.  Þessir þættir geta verið: getustig, notkun skíðanna og þær aðstæður sem reiknað er með að skíða mest í.  Eins getur verið mikilvægt að taka tillit til ef ganga á með púlku eða þunga bakpoka í lengri ferðum.

Stærðartafla – viðmið (dömur og herrar)

Hæð (cm) Þyngd (kg) Lengd skíða
165-170 60-70 180 cm
170-175 70-80 187 cm
175-185 75-85 194 cm
180-190 80-95 201 cm
190+ 95+ 208 cm

Almennt ráð er að ef mest er gengið í grófu landslagi (upp/niður, skóglendi osfrv) þá ætti að velja styttri skíði en ef ætlunin er að ganga lengri og flatari leiðir.  Ef skíðari er léttur m.v. hæð ætti að velja styttri skíði og öfugt.

Additional information

Stærð

, , ,