Description
ACID hnakkhlífin býður upp á aukin þægindi í löngum ferðum þökk sé vandaðri frauðbólstrun með innbyggðu geli.
Hún er hönnuð til að draga úr eymslum og gera setuna mýkri á hvaða hnakk sem er.
- Gel og frauð: Sambland af hágæða frauði og gel-innleggi deilir þyngdinni betur og lágmarkar högg frá veginum.
- Ergo-Relief hönnun: Sérstök miðjurás stuðlar að góðri setstöðu og dregur úr þrýstingi á viðkvæm svæði.
- Situr sem fastast: Með festiólum og sérstöku „anti-slip“ mynstri að innanverðu situr hún tryggilega á hnakknum án þess að renna til.
- Aukið öryggi: Endurskinsborði á hlífinni eykur sýnileika þinn í skammdeginu sem eykur öryggi þitt í umferðinni.
- Uppsetning: Einföld og fljótleg uppsetning á flesta hefðbundna hnakka.









